22. október 2026

Er góð hugmynd að fara í doktorsnám?

Hver er ávinningurinn af því að fara í doktorsnám?

Það er vissulega ávinningur til staðar af því að fara í háskólanám, ekki síst doktorsnám. Hluti doktorsnáms felst í að skapa nýja þekkingu, gefa út vísindagreinar og veita stuðning við háskólakennslu. Það því ýmislegt sem gefur til kynna að ávinningur samfélagsins sé talsverður. Hin hliðin er ávinningur þeirra einstaklinga sem ljúka doktorsnámi. Þar verður myndin aðeins önnur.

Myndin hér að ofan byggir á gögnum Hagstofunnar, en þar er haldið utan um atvinnutekjur landsmanna þar sem byggt er á skattaframtölum. Þegar skoðaðar eru atvinnutekjur þeirra sem lokið hafa meistaranámi og þeirra sem bættu við doktorsnámi til viðbótar við meistaranám má sjá hver munurinn er og hver ávinningurinn er af því að bæta doktorsnámi við. Árið 2025 voru doktorsmenntaðir með að meðaltali 1.232.333 krónur á mánuði fyrir skatta, en þau sem lokið höfðu meistaraprófi voru með 1.092.583 krónur. Munurinn er því tæplega 140 þúsund krónur á mánuði fyrir skatta.

Gráa punktalínan gerir grein fyrir því hversu mikill hlutfallslegur ávinningur er af því að bæta doktorsnámi við meistaranám, en árið 2013 var ávinningurinn rúmlega 30% og hefur nú hrapað niður í 12,8%.

Þarf ávinning af því að fara í doktorsnám?

Að fara í doktorsnám til viðbótar við meistaranám er ekki sjálfsögð ákvörðun. Í fyrsta lagi er það svo að doktorsnám býðst ekki hverjum sem er, en inntökukröfur eru nokkrar og að komast inn í doktorsnám krefst undirbúnings og rökstuðnings sem háskólar verða að fallast á. T.d. að námið feli í sér verðmæta þekkingarsköpun, og að metið sé svo að nemandinn sé raunverulega fær um að geta sinnt náminu og klárað það. Í öðru lagi er að jafnaði um verulega tekjuskerðingu að ræða á meðan doktorsnámi stendur, og fjármögnun námsins getur verið afar misjöfn, en að ljúka doktorsnámi tekur yfirleitt eitthvað á bilinu 4-8 ár.

Doktorsnám er afar mikilvægt fyrir samfélagið. Háskólakennsla og það nám sem á sér stað þar er keyrt áfram af doktorsmenntuðu fólki, auk þess sem doktorsmenntað fólk sinnir mjög sérhæfðum störfum sem krefjast verulegrar þekkingar. Það er því eðlilegt að spyrja hvort það þurfi ávinning fyrir það að fara í og ljúka doktorsnámi. Ef ávinningur er lítill, eða mun ekki nægja til að bæta upp þá tekjuskerðingu sem á sér stað meðan á námi stendur, þá verður hvatinn til þess að leggja námið á sig veikur.

Það er fátt sem gefur til kynna að  núverandi þróun sé á endastöð hvað varðar minnkandi ávinning doktorsnáms umfram meistaranám. Ef þróunin heldur áfram, hvaða áhrif hefur það á möguleika háskólanna á Íslandi til að þrífast og halda uppi góðu starfi?

Gögn Hagstofunnar gefa til kynna að þessi ávinningur sé heldur lítill í dag, og að ávinningurinn sé dvínandi. Hugmyndin um að fara í doktorsnám er því miður að nálgast það að verða augljóslega afar slæm fjárhagsleg hugmynd fyrir einstaklinga.