Um sjóðinn
Að baki sjóðnum standa fjögur stéttarfélög innan BHM sem tóku höndum saman í því skyni að efla þekkingargrunn og rannsóknir á kjörum og aðstæðum félagsfólks síns. Samstarfið var innsiglað við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu og markar tímamót í hagsmunabaráttu fræðafólks í september 2025.

Markmið
Meginhlutverk og markmið Greiningarsjóðsins er að:
- Vinna greiningar á högum háskólamenntaðra sérfræðinga og akademísks starfsfólks.
- Koma að og vinna að greiningum og tölulegum undirstöðuverkefnum í þágu háskólafólks.
- Styðja við gagnadrifna hagsmunagæslu og rökstudda kjarabaráttu aðildarfélaganna.
Fólkið
Starfsfólk
- Halldór Valgeirsson - Sérfræðingur
Stjórn Greiningarsjóðsins
- Hjördís Sigursteinsdóttir (FHA) - formaður
- Íris Davíðsdóttir (FH)
- Sigrún Ólafsdóttir (FPR)
- Þorkell Heiðarsson (FÍN)
Félögin á bakvið sjóðinn
Sjóðurinn er sameiginlegt verkefni eftirfarandi fjögurra stéttarfélaga sem öll starfa undir hatti BHM (Bandalags háskólamanna):
- FH – Félag háskólakennara
- FHA – Félag háskólakennara á Akureyri
- FÍN – Félag íslenskra náttúrufræðinga
- FPR – Félag prófessora í ríkisháskólum


