6. nóvember 2026

Skiptir máli að doktorsgráðum fjölgar hægar en meistaragráðum?

Fjölgun þeirra með doktorsgráðu heldur ekki í við fjölgun þeirra með meistaragráðu

Menntunarstig á Íslandi hefur hækkað mikið á síðustu áratugum. Sífellt fleiri ljúka framhaldsnámi á háskólastigi og hefur fólki með bæði meistara- og doktorsgráðu fjölgað talsvert. Þegar þróun þessara tveggja hópa er borin saman kemur þó í ljós að fjölgun doktorsmenntaðra hefur ekki haldið í við fjölgun þeirra sem ljúka meistaragráðu.


Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands voru 544 einstaklingar með doktorsmenntun árið 1990, en árið 2025 voru þeir orðnir 2.285. Doktorsmenntuðum hefur því fjölgað um 1.741 einstakling, eða um 320% á tímabilinu. Hópurinn er þannig orðinn rúmlega fjórfalt stærri en hann var árið 1990.


Fjölgun þeirra sem eru með meistaragráðu hefur hins vegar verið mun hraðari. Árið 1990 voru 4.578 einstaklingar með meistaragráðu en árið 2025 voru þeir orðnir 32.422. Það er fjölgun um rúm 27 þúsund einstaklinga, eða um 608%. Þeim með meistaragráðu hefur því fjölgað meira en sjöfalt á sama tíma og doktorsmenntuðum hefur fjölgað rúmlega fjórfalt.


Munurinn kemur skýrt fram þegar hlutfall hópanna er skoðað. Árið 1990 voru tæplega 12 doktorsmenntaðir á hverja 100 einstaklinga með meistaragráðu. Hlutfallið hækkaði fyrst og var tæplega 14 af hverjum 100 um aldamótin. Síðan hefur það lækkað verulega og árið 2025 voru aðeins um sjö doktorsmenntaðir á hverja 100 með meistaragráðu.


Þetta þýðir ekki að doktorsmenntuðum hafi fækkað. Þeim hefur þvert á móti fjölgað mikið. Fjölgunin hefur einfaldlega verið mun hægari en meðal þeirra sem ljúka meistaragráðu. Þannig hefur doktorsmenntun orðið hlutfallslega fágætari þegar horft er til efri stiga háskólamenntunar.

Myndin hér að ofan er byggð á gögnum Hagstofu Íslands. Reiknuð er vísitala þar sem 1990 = 0. Gögnin sótt úr skattaframtölum, og er miðað við þá einstaklinga sem höfðu atvinnutekjur á viðkomandi ári.

Hvað með þá sem mennta meistaranemana?


Hin mikla fjölgun meistaramenntaðra vekur einnig spurningar um þróun akademískra starfa við íslenska háskóla. Á meðan þeim sem ljúka framhaldsnámi hefur fjölgað hratt hefur fjöldi akademísks starfsfólks aukist mun hægar.


Árið 2012 voru 699 prófessorar, dósentar og lektorar samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Árið 2025 voru þeir 917*. Akademísku starfsfólki hafði því fjölgað um rúmlega 31% á þessum tíu árum, en á sama tíma fjölgaði doktorsmenntuðum úr 1.370 í 2.285, eða um tæp 67%.


Myndin hér að ofan er byggð á gögnum Hagstofu Íslands. Reiknuð er vísitala þar sem 2012 = 0.

* Gögn Hagstofunnar náðu ekki lengra en til 2022 um fjölda akademísks starfsfólk, og er því brotalínan til marks um að miðað er við gögn um breytingar á fjölda akademísks starfsfólk við Háskóla Íslands.

Hefur álag á akademískt starfsfólk aukist?


Hlutfallslega hæg fjölgun akademísks starfsfólks á móti fjölgun þeirra sem sækja sér framhaldsmenntun leiðir óhjákvæmilega til aukins vinnuálags á starfsfólk háskólanna. Ítrekað hefur verið bent á að sífellt aukið álag hafi bein áhrif á streitu- og kulnunareinkenni sem mælst hafa meðal akademísks starfsfólks.


Í rannsókn meðal háskólafólks mældust rúmlega 40% þátttakenda með mikil eða mjög mikil einkenni kulnunar. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, einn höfunda greinarinnar og prófessor við Háskóla Íslands, hefur jafnframt bent á að mikið kennsluálag fari saman við kröfur um rannsóknir, birtingar, styrkumsóknir og stjórnun. Hún bendir sérstaklega á að nemendum við Háskóla Íslands hafi fjölgað án þess að föstum starfsmönnum hafi fjölgað í takt.


Þróunin sem hér er lýst er því vafalítið einn þeirra þátta sem stuðla að auknu álagi og kulnunareinkennum meðal akademísks starfsfólks.