31. ágúst 2026

Áhrif menntunar á stöðu á húsnæðismarkaði

Doktorsmenntaðir dvelja lengur á leigumarkaði en aðrir háskólamenntaðir

Ný rannsókn á stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði var unnin fyrir aðildarfélög BHM, Verkfræðingafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og fleiri félög. Rannsóknin byggir á svörum tæplega 10 þúsund háskólamenntaðra félagsmanna og markmið hennar var að kanna stöðu þeirra á húsnæðismarkaði, tengsl við húsnæðiskostnað, námslán og tíma frá útskrift. Hægt er að lesa um niðurstöðurnar hér, og einnig hægt að sækja skýrsluna í heild sinni.

Niðurstöðurnar sýna að langflest háskólamenntuð búa í eigin húsnæði með húsnæðisláni, en aðeins lítill hluti er á almennum leigumarkaði. Einnig kemur fram að yngri útskriftarárgangar eru líklegri til að vera með húsnæðislán eða á leigumarkaði en þeir sem hafa verið lengur á vinnumarkaði, sem oftar hafa náð að greiða niður lán sín og búa í skuldlausu húsnæði.


Rannsóknin dregur einnig fram mikilvægi tekna, námslána og fjölskylduaðstæðna. Þeir sem greiða af námslánum eru líklegri til að eiga erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði og háar heimilistekjur tengjast sterkari stöðu á húsnæðismarkaði. Þá virðist fjárhagsleg aðstoð frá fjölskyldu gegna verulegu hlutverki í húsnæðiskaupum yngri kynslóða.

Doktorsmenntaðir skera sig úr


Doktorsmenntaðir voru um 7% svarenda og komu fram skýr merki um að húsnæðisferill þeirra er frábrugðinn öðrum háskólamenntuðum.


Það sem aðgreinir doktorsmenntaða mest frá öðrum hópum er að þeir eru marktækt líklegri til að hafa verið lengur en fimm ár á leigumarkaði en þeir sem hafa grunnnám sem hæsta menntunarstig, og einnig lengur en þau sem eru með meistaranám að baki. Tengslin haldast jafnvel eftir að tekið hefur verið tillit til aldurs, tekna, námslána og fjölskylduaðstæðna. Á móti kemur að doktorsmenntaðir eru jafnframt líklegri til að búa í skuldlausu eigin húsnæði en þeir sem hafa eingöngu lokið grunnnámi.


Niðurstöðurnar benda því til þess að margir doktorsmenntaðir fari síðar inn á eigendamarkað húsnæðis en aðrir háskólamenntaðir, líklega vegna lengri námsferils og seinkaðrar inngöngu á vinnumarkað. Þegar þeir hafa hins vegar komið sér fyrir virðast þeir í meira mæli hafa byggt upp sterka eignastöðu.


Þó var það þannig að ekki fundust marktæk tengsl milli doktorsmenntunar og þess að eiga erfitt með að greiða húsnæðiskostnað. Þeir virðast því ekki standa verr fjárhagslega þegar kemur að mánaðarlegri greiðslubyrði húsnæðis en aðrir háskólamenntaðir.


Myndin hér að ofan sýnir áhrif einstakra þátta á líkur þess að hafa verið lengur en fimm ár á leigumarkaði. Punktarnir sýna gagnlíkindahlutföll (OR) og láréttu línurnar sýna 95% öryggisbil. Gildi hægra megin við viðmiðunarlínuna (OR = 1) benda til aukinna líkna á langri dvöl á leigumarkaði en gildi vinstra megin benda til minni líkna. Myndin sýnir að aldur (40 ára og eldri) og doktorsmenntun eru langlíklegustu þættirnir í líkaninu sem spá fyrir um lengri veru á leigumarkaði, á meðan háar tekjur tengjast minni líkum á langri veru á leigumarkaði.

Í heild gefur rannsóknin til kynna að staða doktorsmenntaðra á húsnæðismarkaði sé nokkuð sérstök. Þeir verja lengri tíma á leigumarkaði en aðrir háskólamenntaðir, en virðast síðar ná sterkri eignastöðu. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig langur námsferill og seinkun á eignamyndun geta haft áhrif á húsnæðisferil fólks sem velur sér hæsta stig háskólamenntunar.